Wednesday, January 18, 2012

Fyrirlestur

Á fimmtudaginn í seinustu viku fengum við í heimsókn Ásmann Agnarsson, grafískan hönnuð. Ármann talaði um margar mismunadi hliðar starfsins og þá hluti sem hann taldi mikilvæga að vita í sambandi við grafíska hönnun. Hann talaði um allskonar tæknilegar staðreyndir s.s. rétta upplausn mynda og mikilvægi þess að velja og fara rétt með letur. Áhugaverðast fanns mér þó sú innsýn sem hann gaf okkur inn í vinnandi heim grafísks hönnuðar. Ármann hefur bæði unnið á auglýsingastofun og verið sjálfstætt starfandi sem gaf honum tækifæri á að lýsa fyrir okkur tveim mismunandi starfskostum í garfískri hönnun. Þar sem ég hef mikinn áhuga á grafískri hönnun fanns mér skemmtilegt að fá Ármann í heimsókn og er fullviss um að ég hafi lært ýmislegt um þennan starfsvettvang.

Ljósmyndamappa

Wednesday, September 14, 2011

Kjarvalsstaðir

Í dag fórum við á sýningu á Kjarvalsstöðum, Ný list verður til,  þar sem til sýnis voru lítt þekkt verk eftir ýmsa íslenska listamenn. Það sem einkennir sýninguna er tímabilið sem öll listaverkin voru gerð á. Öll voru þau gerð á sjöunda áratugnum þegar engin sérstök stefna var ríkjandi í myndlist og hönnun og listamenn voru að prófa sig áfram á ýmsum sviðum. Það sem helst vakti áhuga minn á sýningunni voru verkin eftir Rósku. Mér þótti sérstaklega málverkin eftir hana mjög áhugaverð, kvenleg og skemmtilega fram sett. Það virðist vera að listamenn þessa tímabils á íslandi hafi verið einstaklega afkasta miklir og mikið af spennandi verkum og listamönnum sem ég hefði áhuga á að kynnast frekar.



Mynd af sýningunni: Sigurður Guðmundsson, Kyrrlífismynd (Blómakarfan), 1968